Nae git ootay here,
ye plukey-faced wanker!

miðvikudagur, september 13, 2006

End of an era...

Sit hér einn við lapparann með kaffi við hönd. Síðasta kvöldið mitt hér í vinnubúðunum. Verkið heldur áfram en ég held á brott. Blendnar tilfinningar hellast yfir mann, nei eiginlega hlakka ég bara til. Þetta tímabil á þó sín highs and lows og kannski réttast að taka það helsta saman og lista hér upp.

LOWS:
Að fara í sturtu rétt á eftir öðrum = kalt vatn.
Lífhættulega lífsreynslan í brekkunni.
Magasár, það heyrði til undantekninga ef tímasetningar stóðust.
Spilaði einn golfhring í sumar og gat ekki neitt!
Endalausar símhringingar klukkan 7 í morgunsárið, um fríhelgar.
Búin að vera fáránlega mikil rigning í dag!
Kvöldmatur þegar voru afgangadagar og stundum hina dagana líka.
Að hafa ekki hitt einn mótmælanda.
50cm breiða rúmið mitt, hef líklega haldið vöku fyrir íbúa næsta herbergis vegna veggsparka og olnbogaskota.
Öryggisnámskeið.
Dekkjavesen, ég hlýt bara að vera óheppnasti maður landsins þegar kemur að hjólbörðum.

HIGS:
Sána og bjór, ekki light-bjór samt.
Að hafa klifrað í 25 metra hæð einn og óstuddur, hlítur bara að tilheyra þessum flokki! Var reyndar drullu erfitt, en var drullu hátt.
Lærði c.a. 10 orð í Króatísku.
Gúbbífiskaatriðið.
Snilldar dýnan á 50cm mjóa rúminu mínu.
Hreindýrasteikin, í bæði skiptin.
Prison break og Extras, olli gríðarlegu svefnleysi á tímabili.
80 bjóra sigurinn.
Flugpunktar.
Sigurrós á Seiðó.
Króatísk hráskinka með osti, brauði, ólífum, rauðvíni og skosku viskíi. Eitthvað sem ætti að vera á boðstólum oft í viku.

Þar hafiði það....
Fokk á eftir að gera allt og mikið, og liðið heimtar kveðjpartí á eftir. Held að þeim langi bara í hluta af bjórbirgðunum mínum.
:: posted by Daniel, 9:06 e.h. | 3 comments |

mánudagur, september 11, 2006

Af Afdölum

Hér á Héraði eru hlutirnir ekki eins og í bænum, ó nei...

Yfirmaður minn þurfti á sínum tíma að ganga á milli bæja hér í sveit og eiga einhver samskipti við bændur. Einn bóndinn er rosalega minimalískur, eiginlega bara alls ekkert gefinn fyrir nýjungar af neinu tagi. Hann er til dæmis ekki með salernisaðstöðu inni hjá sér, heldur gerir hann þarfir sínar bara utandyra. Hann er reyndar með klósett inni hjá sér en hefur ekki gefið sér tíma til að tengja það eftir að hann fékk rennandi vatn á bæinn, sem var ekki fyrir svo lögu síðan. Hluti af bænum hans er hlaðinn torfkofi sem er í niðurníðslu.

Yfirmaðurinn heimsótti umræddan bónda og var boðið inn í kaffi. Þegar inn er komið liggur smalahundurinn í dyragættinni úr forstofunni sofandi og hreyfir sig ekki þegar þeir klofa yfir hann. Þeir drekka sitt kaffi og ræða málin til hlýtar og svo kemur að því að mannsi þarf að halda áfram á næsta bæ. Þegar hann er að ganga aftur út og klofar yfir hundinn þá rekur hann fótinn í hann sem vekur þó engin viðbrögð hjá hundsa.

Mannsi segir við bóndann: "Hann er ekki mikið að kippa sér við hundurinn"
Bóndinn svarar: "Nei hann er dauður, ég hef bara ekki gefið mér tíma til að jarða hann!"
:: posted by Daniel, 10:01 e.h. | 0 comments |

fimmtudagur, september 07, 2006

Hvað er betra en að dansa?

Rakst á þetta og þótti afar hressandi. Þessir gaurar fengu víst svo mikla athygli eftir þetta hér að þeir voru beðnir um að taka það atriði á MTV verðlaunaafhendingu í USA.
:: posted by Daniel, 6:37 e.h. | 1 comments |