Nae git ootay here,
ye plukey-faced wanker!

fimmtudagur, júní 22, 2006

WC

Hef lítið náð að fylgjast með HM. Vinnan þarf víst að hafa forgang (búú). Það litla sem ég hef séð hef ég horft á á bresku stöðvunum BBC og iTV. Verð að segja að þeir þulir sem lýsa leikjunum á þessum stöðvum eru algjörir fagmenn. Þá er ég ekki að meina að þeir séu svo faglegir, sem má vel vera, heldur eru þeir bara svo nettir.

Líklega líkar mér svona vel við þá af því að mér líkar vel bresk kímnigáfa. Og bresk kímnigáfa er kaldhæðin...
...sem er gott.

Fyldist með Brössum slátra Japönum áðan. Ágætis leikur, Brassa með svo gott töts eitthvað. En það besta við leikinn voru fagmennirnir sem lýstu leiknum. Töluðu mikið um megrunina hans Ronaldos og endursýndu óspart þegar hann gerði mistök, nennti ekki að hlaupa eða sýndu hversu hægt hann hleypur, m.a. vegna offitu.
Ronaldo kallinum til hróss þá skoraði hann nú tvö mörk og setti nafn sitt á spjöld sögunnar . Þulirnir voru samt eiginlega mest hissa á því að hann hafi náð að hoppa alla leið upp í boltann þegar hann skoraði fyrra markið sitt!
:: posted by Daniel, 9:28 e.h.

2 Comments:

Hæ Danni minn, ætla nú ekki að commenta á þessar fótboltahugleiðingar, bara að láta þig vita að ég og Nína erum búnar að finna síðuna þína, þótt þú vildir ekki gefa hana upp, hehe :)
Kveðja úr fljótsdalnum,
þínar konur, hvor verður það???
Sigga Eva og Nína :)
Anonymous Nafnlaus, at 8:35 e.h.  
Hann velur sér að sjálfsögðu ekki hórur sem konu.
Anonymous Nafnlaus, at 1:47 e.h.  

Add a comment