Nae git ootay here,
ye plukey-faced wanker!

sunnudagur, apríl 30, 2006

Kistuberi

Ég stóð mig víst mjög vel við að bera sjúklinginn. Svo vel að það er altalað hér í sveitinni.

Vorum fá að vinna um helgina, enda baráttudagur verkalýðsins framundan. Sat eins og oft áður niðursokkinn í tölvuna. Að þessu sinni átti framvinduskýrsla hug minn allan. Það er pikkað í mig og ég beðinn um að hjálpa aðeins. Að þess sinni var ég beðinn um að bera líkkistu, með manneskju í!
"Ha, jújú, ee...ekkert mál, ég þarf hvort eð er að skjótast á Reyðarfjörð"
Hoppa uppí bíl og elti. Bíðum stutta stund, svo kemur Ford Econline, bílstjórinn opnar afturhurðina og við berum kistuna fjögur saman inn í kirkjuna. Athöfnin var víst daginn eftir. Hef aldrei áður verið kistuberi, ekki það að ég hafi verið eitthvað spenntur fyrir því að prófa!

Vona að ég hafi ekki staðið mig of vel, nenni ekki að vera efstur á óskalista um leið og það á að fara að bera eitthvað.
:: posted by Daniel, 9:31 e.h. | 0 comments |

Ósköp venjulegur vinnudagur

Vaknaði hálf átta, kom mér í morgunmat og kláraði fyrsta kaffibollann á skrifstofunni meðan ég gluggaði yfir mbl og póstinn minn. Kom mér að verki um leið og koffeinið sigraði syfjuna.

Sat djúpt hugsi yfir merkilegum útkomum á offsetti á leiðara í miklum halla á löngum strekkum! Skyndilega kemur hjúkka hlaupandi inn ganginn og talar við vinnufélagann í næsta herbergi. Næst rak hún hausinn inn til mín og biður mig að hjálpa þeim aðeins og hleypur af stað. Ég stekk á fætur á eftir henni alla leið yfir í sjúkraskýlið. Þar lá stórvaxinn maður beislaður á sjúkrarúmi með rauðan kraga, þann stærsta sem ég hef séð. Við bárum hann út í sjúkrabíl. Fékk mér annan kaffi og velti því fyrir mér hvort að langtímasig hefði einhver áhrif á offsettið.

Hinn slasaði hafi víst rotast við vinnu, náði því aldrei hvort hann var Pólverji eða Svíi.

Eftir hádegið hitti ég króatana úti á vinnusvæði. Josa heitir einn aðal kappinn, skondinn gaur sem kann nánast ekkert í ensku. Tjáði mér (með túlk) að ég ætti ekki að vera í skítugum öryggisskóm og skærgulu vinnuvesti heldur í lakkskóm með bindi. Mér þótti þetta ekkert sérstök ráð þar sem ég stóð með skónna hálfsokkna í drullu og allt í ryki í kringum okkur. En eftirá að hyggja er þetta ekki svo galið. Held ég að ég skelli upp bindi við sérstök tækifæri, flottu smellubindi sem passar vel við skærgult. Eftir stuttan fund um stál, bolta og boltaleysi leystu þeir mig út með gjöfum. Það er víst siður í þeirra heimalandi að gefa samstarfsaðillum og yfirvaldi gjafir(mútur). Þeir gáfu mér stóra flösku af króatísku Jagermeister, grillkrydd?, djúsduft? og konfekt, allt framleitt í þeirra heimalandi og með fylgdi túristabæklingur um landið. Hinsvegar fengu tollverðirnir á FLE reykta kjötið sem ég átti að fá, tóku meira að segja pening fyrir.

Ég er farinn að hlakka til næstu viku!

Skál
:: posted by Daniel, 8:50 e.h. | 0 comments |

Spud?

Hef séð heilan helling af svona, ætli það sé ekki réttast að kalla þetta próf. Varð einna spenntastur við að vita niðurstöðuna úr þessu:


Which Trainspotting Character Are You?


Varð fyrir vonbrigðum, var nokkuð viss um að ég væri ekki Begbie en hefði frekar hallast að Renton eða Sick Boy, en ekki SPUD.
:: posted by Daniel, 8:38 e.h. | 1 comments |

Bogg, bloggiddíblogg!

Kominn með eina svona bloggsíðu.
Veit ekki alveg hvort maður sé maður í svona vesen. Skrifa eitthvað bull sem öðrum á að þykja svaka skemmtilegt...

...ekki er ég í hljómsveit á tónleikatúr eða að fara að keppa í Júróvision. Ekki er ég atvinnumaður í íþróttum í útlöndum. Ekki er ég á Þingi né í framboði. Og ekki tók ég þátt í Ungfrú Alheimur.

Hinsvegar er ég fastur uppi í sveit á hættulegasta vinnusvæði landsins umkringdur fólki frá fleirri löndum en ég kann að telja...

...þarf líklega að fara að æfa mig í að telja.
:: posted by Daniel, 8:26 e.h. | 0 comments |